Næsta námskeið vegna akstursbanns hefst laugardaginn 19. maí, 2012, kl. 13:00. Námskeiðið verður haldið að Skeifunni 11b, Rvk. Fjöldi þátttakenda takmarkast við sex að lágmarki og 12 að hámarki. Námskeiðsgjald er kr. 39.900,- Nauðsynlegt er að skrá sig með því að hafa samband við Sigurð, siggi@17.is eða í síma 822 4166. Nánari upplýsingar um námskeið vegna akstursbanns er að finna hér að ofan – smellið á stikuna “akstursbann”.
Segja frá á Facebook
Bóklegt bifhjólanámskeið verður haldið þriðjudaginn 8. maí og miðvikudaginn 9. maí, 2012. Námskeiðið verður haldið í Háaleitisskóla (áður Álftamýrarskóla) og hefst kl. 17:30 báða dagana. Nauðsynlegt er að hafa samband við Sigurð til að skrá sig á námskeiðið en fjöldi þátttakenda er takmarkaður á hverju námskeiði. Verð kr. 17.000,- Á námskeiðinu er hægt að kaupa eftirfarandi náms- og kennslugögn: Akstur og umferð, A réttindi (bók) kr. 4.500,- Mótorhjól 1 (DVD) kr. 4.500,- DVD diskur og bók saman, kr. 8.000,- ATH: Hér er um vandað námskeið að ræða og ánægja þátttakenda er okkar besta auglýsing! Kennarar á námskeiðinu eru hlaðnir af þekkingu og fróðleik og starfa eingöngu við ökukennslu. Námskeiðið er ætlað þeim sem hyggjast verða sér út um A eða M réttindi. Til að skrá sig á námskeiðið eru þrjár leiðir: Sendið tölvupóst á siggi@17.is Hringið í síma 822 4166 Notið „hafa samband“ flipann hér á síðunni – efst til hægri
Segja frá á Facebook
Ökukennsla 17.is býður upp á ökuskóla 1 og 2 í samvinnu við Ökukennslu Reykjavíkur. Ökuskóli 1 hefst mánudaginn 16. janúar, kl. 18:15. Ökuskóli 2 hefst þiðjudaginn 31. janúar, kl. 18:15. Ö1 lýkur kl. 21:15 og Ö2 lýkur kl. 22:00. Kennt er á Hverfisgötu 105, annarri hæð.
Ökuskóli 1 og 2, næstu námskeið:
Skóli: Kvöld 1 Kvöld 2 Kvöld 3
|
Ö1
|
16. apríl
|
17.apríl
|
19.apríl
|
|
|
|
Ö2
|
24. apríl
|
26. apríl
|
|
|
|
| Ö1 |
7. maí |
8. maí |
10. maí |
|
|
| Ö2 |
15. maí
|
17. maí |
|
|
|
Segja frá á Facebook
Ökunám er mikilvægt því nemandi býr að því alla ævina.
Mikilvægt er að báðir aðilar, kennari og nemandi, gefi sér góðan tíma í ökunámsferlið.
Góður undirbúningur stuðlar að gæfuríkum ferli í umferðinni.
Ökunáminu má skipta niður í nokkur þrep:
- Verklegt nám og bóklegt nám fyrir æfingaakstur
- Æfingaakstur
- Bóklegt nám fyrir próf
- Verklegt nám fyrir próf
Smelltu á Lög og reglur þar sem þú finnur umferðarmerkin, umferðarlögin og helstu reglugerðir sem varða vegfarendur. Vakin er athygli á að verulegar breytingar hafa verið gerðar á umferðarlögunum, t.d. gilda bráðabirgðaökuskírteini nú í 3 ár, handhafi þess fer í akstursbann fái hann 4 punkta á tímabilinu og þarf þá að fara á námskeið og í fræðilega og verklega prófið á ný.
Við upphaf náms fær nemandi ökunámsbók hjá ökukennara. Í ökunámsbók er allur námsferillinn skráður ásamt upplýsingum sem leiðbeinandi getur nýtt sér. Þessi ökunámsbók fylgir nemanda í gegnum allt ökunámsferlið.
Ökunámsbók þarf alltaf að vera til staðar í þeirri bifreið sem nemi er á í æfingaakstri.
Þegar æfingaakstur hefst fær nemandinn afhent æfingaakstursmerki hjá ökukennara, en þetta merki á alltaf að vera aftan á bifreiðinni þegar ökunemi er við stýrið.
Segja frá á Facebook