Ökunám er mikilvægt því nemandi býr að því alla ævina.
Mikilvægt er að báðir aðilar, kennari og nemandi, gefi sér góðan tíma í ökunámsferlið.
Góður undirbúningur stuðlar að gæfuríkum ferli í umferðinni.
Ökunáminu má skipta niður í nokkur þrep:
- Verklegt nám og bóklegt nám fyrir æfingaakstur
- Æfingaakstur
- Bóklegt nám fyrir próf
- Verklegt nám fyrir próf
Smelltu á Lög og reglur þar sem þú finnur umferðarmerkin, umferðarlögin og helstu reglugerðir sem varða vegfarendur. Vakin er athygli á að verulegar breytingar hafa verið gerðar á umferðarlögunum, t.d. gilda bráðabirgðaökuskírteini nú í 3 ár, handhafi þess fer í akstursbann fái hann 4 punkta á tímabilinu og þarf þá að fara á námskeið og í fræðilega og verklega prófið á ný.
Við upphaf náms fær nemandi ökunámsbók hjá ökukennara. Í ökunámsbók er allur námsferillinn skráður ásamt upplýsingum sem leiðbeinandi getur nýtt sér. Þessi ökunámsbók fylgir nemanda í gegnum allt ökunámsferlið.
Ökunámsbók þarf alltaf að vera til staðar í þeirri bifreið sem nemi er á í æfingaakstri.
Þegar æfingaakstur hefst fær nemandinn afhent æfingaakstursmerki hjá ökukennara, en þetta merki á alltaf að vera aftan á bifreiðinni þegar ökunemi er við stýrið.

I need to know mor about tgese websites
Richard
How to contact not clear. I can give my cell no-9890777227