Bifhjólakennsla á vegum 17.is er í fullum gangi. Við bjóðum upp á góða aðstöðu fyrir verklega kennslu, bóklegt nám og góð bifhjól í báðum stærðarflokkum.
Hafið samband til að bóka tíma hvort sem er á bóklega námskeiðið eða í ökutímana.
Skv. reglum er skylt að sitja bóklegt námskeið og taka að lágmarki 11 ökutíma. Hluti tímanna eru teknir á lokuðu svæði þar sem m.a. er æfð hemlun/nauðhemlun, keiluakstur, snigilakstur ofl.
Sigurður Jónasson, ökukennari, hefur ekið öllum stærðum og gerðum bifhjóla árum saman. Akstur bifhjóla er aðaláhugamálið og stöðugt eru kennsluaðferðir í endurskoðun og þróun. Þannig nýtist hver kennslustund ökunemanum eins og best er á kosið. Sigurður er höfundur kennsluefnis þess sem notað er á bóklegum bifhjólanámskeiðum hjá Ökukennslu 17.is. Sigurður kappkostar að auka við þekkingu sína sem kostur er og sótti m.a. námskeið hjá MCraft sem haldið var á Íslandi sumarið 2009.
Verð á bóklegu námskeiði er kr. 18.000,- og verð hvers ökutíma er kr. 6.000,-
ATHUGIÐ að fjöldi þátttakenda er takmarkaður við 25 á bóklegum námskeiðum hjá Ökukennslu 17.is! Þannig fá þátttakendur á námskeiðunum það besta sem í boði er og allir hafa tækifæri til að tjá sig, bera fram spurningar o.s.frv.
Þeir sem hefja bifhjólanám hjá Ökukennslu 17.is greiða kr. 18.000,- fyrir bóklegt námskeið og kr. 6.000,- fyrir ökutímann. Ekkert lágmarksgjald – aðeins greitt fyrir tekna tíma! Þurfi nemandi fleiri kennslustundir en 11 greiðir hann aðeins kr. 3.000,- fyrir hverja kennslustund umfram 11.
Hjólin sem við notum eru af Kawasaki gerð, Kawasaki ER6n kennsluhjól. Án efa eitt það besta sem í boði er. Kawasaki ER6n fær frábæra dóma, hvort sem er sem hjólið fyrir byrjanda, konuna, karlinn eða þann sem hefur prófað allt! Sjá einnig Top Gear dóm hér.
Ökukennsla 17.is er nú með fjögur Kawasaki ER6n hjól í kennslu og hefur tök á að sinna nemendum hvar sem er á landinu. Sem dæmi geta sex nemar tekið sig saman, pantað bifhjólanámskeið hjá 17.is, við komum á staðinn, höldum bóklegt námskeið, sinnum verklegri þjálfun og gerum nemana klára fyrir prófið. Verðið er kr. 83.000,- á mann miðað við bóklega námskeiðið og 11 kennslustundir á hjólinu. Hafið samband til að fá nánari upplýsingar.
ATH! Skv. umferðarlögum skal hver sá sem er á bifhjóli nota viðurkenndan lágmarkshlífðarfatnað ætlaðan til slíkra nota. Við mælum með að nemar verði sér úti um slíkan fatnað áður en nám hefst. Þá er hægt að aðlagast nýja fatnaðinum og nýja hjálminum meðan á náminu stendur. Hlífðarfatnaður endist árum saman sé vel með hann farið.
