Ökunámið er tvískipt, bóklegt nám og verklegt nám. Bóklega námið fer fram í ökuskóla og er þrískipt, Ökuskóli I, Ökuskóli II og Ökuskóli III. Samtals er bóklega námið að lágmarki 24 kennslustundir.
Verklega námið er að lágmarki 16 kennslustundir.
Í verklegri kennslu er verið að æfa leikni og öryggi ökunema á ýmsum þáttum umferðarhegðunar.
Ökunemar hjá Ökukennslu 17.is þurfa almennt ekki að sækja og aka heim öðrum nemum!
Verklega kennslan tekur tíma og gott er að gera ráð fyrir því.
Ökukennari sendir nemenda ekki í æfingaakstur fyrr en hann er orðinn öruggur með að nemandinn sé orðinn þjáll og meðvitaður um hvernig umferðin gengur fyrir sig og geti keyrt undir leiðsögn foreldra/leiðbeinanda.
Í lok verklegrar kennslu fer ökukennari yfir ferlið með foreldra/leiðbeinanda.
Foreldri/leiðbeinandi fer með í síðasta tíma fyrir æfingaaksturinn.
Foreldri/leiðbeinandi fær æfingaakstursmerki og uppáskrifaða ökunámsbók.
AKSTURSMAT
Forsenda fyrir útgáfu fullnaðarskírteinis er að ökumaður hafi ekki fengið refsipunkta eða verið sviptur ökuréttindum síðustu 12 mánuðina. Hann þarf einnig að fara í akstursmat með ökukennara. Hægt er að panta akstursmat hjá Ökukennslu 17.is.
HVAÐA RÉTTINDI FÆRÐU?
Almenn ökuréttindi, flokkur B veitir þér heimild til að aka:
- fólksbifreið með leyfða heildarþyngd 3.500 kg eða minna og með sæti fyrir 8 farþega eða færri auk ökumanns,
- sendibifreið með leyfða heildarþyngd 3.500 kg eða minna,
- fólksbifreið eða sendibifreið með tengdan eftirvagn/tengitæki sem er 750 kg eða minna að leyfðri heildarþyngd,
- fólksbifreið eða sendibifreið með tengdan eftirvagn/tengitæki sem er meira en 750 kg að leyfðri heildarþyngd, enda sé leyfð heildarþyngd beggja ökutækja 3.500 kg eða minna og leyfð heildarþyngd eftirvagnsins/tengitækisins ekki meiri en eigin þyngd dráttartækisins,
- dráttarvél,
- vinnuvél (mátt ekki vinna á hana nema hafa öðlast sérstök vinnuvélaréttindi),
- léttu bifhjóli (skellinöðrur, 50cc)
- bifhjóli á þremur eða fleiri hjólum
- torfærutæki s.s. vélsleða, torfærubifjóli.
