Bóklegt bifhjólanámskeið verður haldið miðvikudaginn 14. mars og fimmtudaginn 15. mars, 2012. Námskeiðið verður haldið í Álftamýrarskóla og hefst kl. 17:30 báða dagana. Nauðsynlegt er að hafa samband við Sigurð til að skrá sig á námskeiðið en fjöldi þátttakenda er takmarkaður á hverju námskeiði. Verð kr. 17.000,-
Á námskeiðinu er hægt að kaupa eftirfarandi náms- og kennslugögn:
Akstur og umferð, A réttindi (bók) kr. 4.500,-
Mótorhjól 1 (DVD) kr. 4.500,-
DVD diskur og bók saman, kr. 8.000,-
ATH: Hér er um vandað námskeið að ræða og ánægja þátttakenda er okkar besta auglýsing! Kennarar á námskeiðinu eru hlaðnir af þekkingu og fróðleik og starfa eingöngu við ökukennslu. Námskeiðið er ætlað þeim sem hyggjast verða sér út um A eða M réttindi.
Til að skrá sig á námskeiðið eru þrjár leiðir:
Sendið tölvupóst á siggi@17.is
Hringið í síma 822 4166
Notið „hafa samband“ flipann hér á síðunni – efst til hægri

Hæhæ
Ég er að spá í bóklegt bifhjólanámskeið, þarf ég að vera búin að taka einhverja verklega tíma áður.
Málið er að ég bý úti á landi þar sem ekki er verið að kenna neitt af þessu. En ég hafði svo hugsað mér að ná mér í ökutíma þegar ég er á verð í borgina.
Kveðja
Sirrý