Greinar

Akstursbann

Ökukennsla 17.is heldur sérstök námskeið fyrir þá sem fara í akstursbann eða eru sviptir ökuréttindum á grundvelli bráðabirgðaökuskírteinis.

Hafirðu þegar skráð þig hjá Umferðarstofu geturðu haft samband við Ökukennslu 17.is til að staðfesta þátttöku á námskeiðinu.  Þátttökugjald er kr. 39.900,-

Næsta námskeið hefst 11. september, 2010.  Námskeiðið stendur yfir í þrjár vikur og er kennt fjóra laugardaga kl. 13:00 – 15:30.  Námskeiðið er í fjórum lotum og lýkur laugardaginn 2. október.  Tvöfaldur ökutími, sérstakt akstursmat, er tekið meðan á námskeiðinu stendur og er innifalið í þátttökugjaldinu.

Á námskeiðinu er þátttakendum kynnt undrstöðuatriði góðaksturs.

Gríðarleg ánægja

Þátttakendur á námskeiðunum okkar hafa verið mjög ánægðir og í viðhorfskönnunum kemur þetta m.a. fram:

“Svakalega gott námskeið sem ég hafði mikið gagn af.  Hefði viljað fara á þetta námskeið þótt ég hefði ekki misst prófið.”

“Ég myndi mæla með þessu námskeiði fyrir alla sem eru á aldrinum 17-20 ára. Það á að hafa þetta námskeið í staðinn fyrir Ökuskóla 1-2 !!!”

“Mér finnst námskeiðið frábært og frábærir kennarar. Lærði margt af þessu og er reynslunni ríkari. Fannst þetta frekar ódýrt miðað við frábært námskeið og kennara.  Takk fyrir mig :-)

“Frábært námskeið sem ég hefði ekki getað verið sáttari með.  Mjög margt sem ég lærði og margt leiðrétt sem maður “taldi” sig vita.  Æðislegir kennarar og bara tveir þumlar upp :-)

“Bara frábært námskeið og lærdómsríkt”

“Námskeiðið virkaði vel og náði vel til mín.”

“Frábært námskeið, takk fyrir mig”

“Hélt að þetta yrði eins og ökuskólinn en þetta var bara mjög skemmtilegt”

“Ég lærði mikið á þessu námskeiði – takk”

“Af hverju er ekki ökuskólinn svona?”

“Miklu betra en ég bjóst við :-)