Kennslubifreiðin er Toyota Rav4 dísel, árg. 2006. Rav4 er sérleg þægilegur bíll til að læra á því hann er lipur og rásfastur, hlaðinn öryggisbúnaði, s.s. 9 loftpúðum þar af er einn loftpúði sem verndar hné ökumanns og í bílnum er öflug díselvél. Gírkassinn er 6 gíra. Stórir hliðarspeglar auðvelda nemanum að átta sig á umhverfinu. Maður situr nokkuð hátt í Rav4 sem eykur til muna öryggi, yfirsýn og þægindi í akstri.
Öflug díselvélin gerir hverjum ökunema auðvelt að læra að taka af stað við allar aðstæður því togkraftur vélarinnar er mikill á lágum snúningi.
Nánari upplýsingar um Rav4 eru hér.
