Greinar

Kostnaðurinn

Hvers vegna að velja Ökukennslu 17.is?

Að taka bílpróf getur verið kostnaðarsamt fyrir flesta.  Það borgar sig því að velja vel þegar kemur að því að byrja í ökunámi.

Hjá ökukennslu 17.is er fagmennska í fyrirrúmi.  Ökunám er krefjandi en á jafnframt að vera ánægjulegt.  Það er fátt skemmtilegra en að upplifa þegar nemandinn kemst yfir hverja hindrunina á fætur annarri.  Ánægðir nemendur hjá Ökukennslu 17.is eru okkar besta auglýsing.  Þess vegna spyrjum við hvort þú sért í hópi þeirra heppnu sem hefjið nám hjá okkur?

Ökukennarinn, Sigurður Jónasson, hefur yfirgripsmikla þekkingu á þeim þáttum sem varða umferðina, ökunámið og ökutækin.  Sigurður er félagi í Ökukennarafélagi Íslands sem er fagfélag ökukennara.

Fyrir þá sem hyggja á nám til bifhjólaréttinda er ekki spurning um að velja ökukennara sem er bifhjólamaður af lífi og sál en Sigurður hefur ekið bifhjólum árum saman auk þess að vera höfundur kennsluefnis þess sem notað er á bóklegum námskeiðum hjá Ökukennslu 17.is og hjá  Bifhjólaskóla lýðveldisins.  Akstur bifhjóla er eitt helsta áhugamál Sigurðar – lærðu að aka bifhjóli hjá þeim sem stunda sportið!

Skráðu þig með því að hringja í síma: 822 4166.

Kostaðurinn við ökunámið skiptist niður á nokkra þætti, sem eru:

  • Verkleg kennsla um það bil kr. 112.500,- til 165.000,-  og fer það eftir tímafjölda, en hver nemandi verður að taka að lágmarki 15 ökutíma. Verð hvers tíma er kr. 7.500,- (viðmiðunarverð kr. 9.360,-).
  • Ökuskóli 1 og 2 + námsgögn kr. 25.500,-
  • Ökuskóli 3 (áhættuvarnarakstur) kr. 36.000,-
  • Bráðbirgðaökuskírteini kr. 3.300,-
  • Skriflegt próf kr. 2.900,- ( pr. skipti )
  • Verklegt próf kr. 8.000,- ( pr. skipti )
  • Mynd í ökuskírteini +/- 1.500,-

Í flestum tilfellum er greitt jafnt og þétt fyrir ökutímana, á um það bil fjögurra til fimm ökutíma fresti og lokauppgjör fer fram áður en nemandi fer í æfingaakstur eða í verklega prófið.  Hjá Ökukennslu 17.is er ökunámsbók og æfingaakstursmerki innifalið í verði ökutímanna.

Kostnaður við bifhjólanámið skiptist í tvennt:

  • Bóklegt námskeið kr. 16.000,-
  • Verkleg kennsla kr. 6.000,- fyrir hverja kennslustund.  Aðeins er rukkað fyrir tekna tíma.  Taki nemandi 11 tíma kostar námið kr. 72.000,- með próftímanum en þurfi neminn fleiri tíma er verð hvers tíma umfram 11 tímana aðeins kr. 4.500,-

Verkleg kennsla á létt bifhjól kostar kr. 30.000,-  til prófs.

Kíktu á dálkinn “Hjólin” hér að ofan en þar er að finna bestu tilboðin í bifhjólakennslunni!

Bóklegt próf kostar kr. 2.900,- og verklegt próf kostar kr. 8.000,- en verklegt próf fyrir létt bifhjól kostar kr. 5.100,-

Akstursmat

Akstursmat kostar kr. 6.000,- sé það tekið á eigin bíl en kr. 7.500,- leggi ökukennarinn til bílinn.

Sérstök námskeið – akstursbann

Ökukennsla 17.is heldur sérstök námskeið fyrir þá sem lenda í akstursbanni eða eru sviptir ökuréttindum á grundvelli bráðabirgðaskírteinis. Verð námskeiðsins hjá okkur er kr. 39.900,-

Næsta námskeið hefst laugardaginn 11. febrúar, 2012, kl. 13:00. Leiðbeinandi auk Sigurðar er ökukennarinn Gunnsteinn R. Sigfússon. Hafirðu þegar skráð þig hjá Umferðarstofu geturðu haft samband við okkur til að staðfesta þátttöku á námskeiðinu.

Greiðslutilhögun
Fyrir ökunám og námskeið er hægt að greiða með öllum helstu greiðslukortum en einnig er hægt að fá sendan greiðsluseðil.