Við sendum þess í stað rafræna staðfestingu beint í stafrænu ökunámsbókina svo nú er engin bið eftir staðfestingu með póstinum :)
Hér eru leiðbeiningar fyrir ökunema hvernig þeir finna stafrænu ökunámsbókina inni á island.is.
Umsókn um æfingaakstur fyrir leiðbeinendur er einnig rafræn. Þegar ökukennari hefur staðfest að ökunemi sé tilbúinn í æfingaakstur í ökunámsbók og ökuneminn hefur lokið ökuskóla 1 geta þeir sem vilja gerast leiðbeinendur farið inn á www.island.is/okunam og fundið þar upplýsingar um æfingaakstur með leiðbeinanda og hlekk á umsókn.
Einnig má finna umsóknina á vef sýslumanna : https://island.is/umsoknir/aefingaakstur/
Ef umsækjandi uppfyllir skilyrði fyrir því að gerast leiðbeinandi fær hann leyfið sent beint í pósthólfið sitt á Mínum síðum á island.is og ökunemi fær einnig tilkynningu um að leiðbeinandi sé búin að skrá sig. Þessu leyfi getur leiðbeinandinn framvísað ef lögregla fer fram á að fá að sjá leyfið.