Skilmálar og persónuvernd

Almennar upplýsingar:

Við netnotkun er lítil textaskrá sett inn á tölvur notenda eða önnur snjalltæki þegar vefsvæði er heimsótt í fyrsta skipti. Slíkar textaskrár eru kallaðar vefkökur.

Þegar vefur 17.is er heimsóttur er vefköku hlaðið niður af vefvafra notanda og hún notuð af vefsíðu 17.is til að fylgjast með hvernig notendur vafra um vefsvæðið, í því skyni að bæta þjónustuna.

Vefsíða 17.is sendir ákveðnar upplýsingar í vafra notenda til þess að auðveldað notendum aðgang að ýmsum aðgerðum.

Notkun 17.is á vefkökum:

Samþykki notandi skilmála 17.is um notkun á vefkökum gefur hann 17.is m.a. heimild til þess að:

  • geyma og senda upplýsingar um fjölda notenda og hve oft vefsvæðið er heimsótt,
  • auðkenna notendur sem hafa skráð sig inn á vefinn og sníða leit og þjónustu við notendur til samræmis við auðkenninguna,
  • efla og vinna að framförum á þjónustu vefsvæðisins með því að hafa upplýsingar um notkun hennar.

17.is notar jafnframt Google Analytics frá Google. Google Analytics er stafrænt markaðsetningartæki. Google Analytics gefur jafnframt skýrslur um framfarir á vefsvæðum en ekki er gerður greinarmun á stökum notendum. Google Analytics notar sínar eigin vefkökur til að fylgjast með samskiptum notenda við vefsvæðið. Í þessu sambandi gerir 17.is skilyrði um að birta notendum auglýsingar í gegnum markaðskerfi Google. Vilji notandi ekki sjá slíkar auglýsingar, getur hann slökkt á notkun á vefkökum.

Slökkva á notkun á vefkökum:

Notendum er alltaf mögulegt og heimilt að stilla netvafra sína þannig að slökkt sé á notkun á vefkökum, svo þær vistist ekki eða netvafrinn óski eftir heimild notenda fyrst. Getur slíkt þó dregið úr aðgangi að ákveðnum síðum á vefsvæðinu og þjónustum þeim tengdum.

Hversu lengi eru vefkökur á tölvum/snjalltækjum notenda?

Heimilt er að geyma vefkökur í tölvum notenda í allt að 24 mánuði, frá því að notandi heimsótti síðast vefsíðu 17.is.

Meðferð 17.is á persónuupplýsingum:

Farið verður með allar persónuupplýsingar sem verða til við notkun á vefkökum í samræmi við persónuverndarlög. 17.is lýsir því yfir að ekki verði unnið með slíkar upplýsingar í öðru skyni en samkvæmt framangreindu. Þar að auki verða upplýsingarnar ekki varðveittar lengur en þörf krefur miðað við tilgang vinnslu. Persónuupplýsingar notenda verða ekki sendar þriðja aðila nema lög kveði á um annað.

Kennsluvefur - innri vefur 17.is

Með notkun á kennsluvef 17.is staðfestir nemandi að hann hafi skilað inn umsókn um námsheimild hjá sýslumanni og farið í a.m.k. einn verklegan ökutíma hjá ökukennara (B réttindi).

Þegar nemandi skráir sig inn á kennsluvef 17.is safnar vefurinn upplýsingum um nemandann og framgang hans í náminu. Við skráningu á námskeið, lok hverrar lotu og lok námskeiðs er ökukennara viðkomandi nemanda sendur tölvupóstur um framgang nemdandans í námi hjá 17.is.

17.is er skylt að senda slíkar upplýsingar skv. reglum Samgöngustofu um ökukennslu í fjarnámi. 

17.is miðlar þessum upplýsingum ekki til annarra aðila nema lög kveði á um annað.